*Hulda*
Áriđ 2008Hulda Björg Ţórđardóttir
~ Annáll 2008 ~
Janúar
- Gísli byrjaði að vinna aftur á Rafeyri eftir jólafrí og ég var heima í fæðingarorlofi með snúlluna
- Ég tók tvær vinnuhelgar í bíóinu
- Alls kyns furðulegir draumar gerðu vart við sig
- Pirringur út í sjónvarpsfréttir og strætó
- Við mæðgur dúlluðumst heilan helling
- Arna Karen byrjaði að velta sér og fara upp á hné;0)
- Við skötuhjú sóttum um leikskólavist fyrir prinsessuna
- Við familían skelltum okkur í ungbarnasund
- Áttum góðar kvöldstundir með Katrínu og Agli vinum okkar
- Stoltir foreldrar komust að því að þau áttu litla stunddrottningu;0)
- 5 mánaða skoðun hjá Örnu Karen
Febrúar
- Arna Karen fékk að borða graut í fyrsta skiptið
- Við mæðgur skelltum okkur suður í afmælið hans Sigurðar Axels
- Við mæðgur fórum á mömmumorgun í Glerárkirkju
- Familían hélt áfram í ungbarnasundinu
- Myndataka hjá Dagsljós
- Arna Karen varð hálfs árs skotta!!!
- Áttum fleiri góðar stundir með Katrínu og Agli
- Arna Karen greyndist með mjólkuróþol
- Amma Freyja kvaddi okkur:(
Mars
- Kistulagning og jarðaför Ömmu Freyju:(
- Ég fór í segulómun og hitti endurhæfingarlækni út af bakinu
- Við fjölskyldan byrjuðum á framhaldsnámskeiði í ungbarnasundinu;0)
- Ég hætti LOKSINS á ógeðis sterakúrnum
- Við skötuhjú skelltum okkur í leikhús á Fló á skinni
- Við Gísli áttum 3 ára sambandsafmæli og 2 ára trúlofunarafmæli:D:D:D
- Fæðingarorlofinu lauk og ég byrjaði að vinna aftur í bíóinu
- Páskar!!!
- 6 mánaða skoðun hjá Örnu Karen
- Arna Karen fór að stitja sjálf;0)
- Arna Karen fékk fyrstu tönnina sína;0)
- Við fjölskyldan skelltum okkur upp í sveit
- Myndataka hjá Dagsljós
- Fórum í fermingu til Axels Brynjars
- Ég byrjaði í sjúkraþjálfun
- Snædís kom HEIM!!!
Apríl
- Við Snædís fórum að sjá Steina leika inn í Freyvangi og skelltum okkur á djammið
- Mömmumorgnar hjá okkur mæðgum
- Pjattpíkuhittingur
- Matarboð hjá Snædísi og Steina
- Fleiri hittingar með Katrínu og Agli
- Við Gísli skelltum okkur í leikhús;0)
- Við mæðgur röltum um bæinn með Áróru og Arney
- Mömmuhittingur hjá Stínu frænku
- 7 mánaða skoðun hjá Örnu Karen
- Arna Karen fór á sýklalyf út af exeminu
- 8 mánaða skoðun hjá Örnu Karen
- Við fjölskyldan áttum æðislegan dag saman á sumardaginn fyrsta;0)
- Myndataka hjá Dagsljós
- Við mæðgur skelltum okkur suður
Maí
- Við skötuhjú áttum afmæli og áttum alveg YNDISLEGAN afmælisdag saman;0)
- Fjölskyldan skellti sér vestur í fermingu til Örnu Maríu
- Arna Karen hætti á brjósti
- Í ljós kom að mjólkuróþolið hennar Örnu Karenar var víst mjólkurofnæmi
- Sumarbústaðarferð með Katrínu og Agli
- Við familían skelltum okkur í smá heimsókn í sveitina og kíktum á sauðburðinn
- Fleiri mömmumorgnar
- Pjattpíkudjamm!!!
- 9 mánaða skoðun hjá Örnu Karen
- Við mæðgur nutum veðurblíðunnar meðan pabbi var í vinnunni
- Feðginin fóru í nokkra hjólatúra
- Myndataka hjá Dagsljós
- Við mæðgur fórum á vorgrill í leikskólanum hans Tómasar
- Ferming hjá Atla Rafn
- Síðuskóla - reunion!!!
Júní
- Feðginin skelltu sér upp í sveit einn dag meðan ég var að vinna
- Við Gísli keyptum okkur the fjölskyldubíl - eitt stykki Volvo takk fyrir takk!!!
- Ég fékk inn í HÍ
- Ég varð eins árs stúdeng og auðvitað skellti mér í júbileringu;0) Minn bekkur tók þetta með stæl og gerði þetta að heillri helgi;0)
- Ættarmót í Lundi í Öxarfirði og sveitaferð;0)
- Arna Karen fékk inn á leikskólann Leikgarð
- 10 mánaða skoðun hjá Örnu Karen
- Við Gísli gæsuðum og steggjuðum Katrínu og Egil
- Við fengum þónokkrar heimsóknir í þessum mánuði
- Pjattpíkuferð í keilu ásamt köllunum;0)
- Myndataka hjá Dagsljós
- Ég eignaðist litla frænku
- Mikið að gera í vinnunni!
Júlí
- Arna Karen var í endalausri pössun meðan ég var í brjálaðri vinnutörn
- Ég hætti að vinna og fór í sumarfrí;0)
- Anna Birna og Valdi komu norður til okkar
- Spilakvöld og dinnerar með Snædísi og Steina;0)
- Brúðkaupsundirbúningur - Gísli var veislustjóri í brúðkaupi vina okkar
- Brúðkaup Katrínar og Egils
- Sjötugsafmæli hjá afa Gísla
- Við mæðgur skelltum okkur suður með Snædísi og Hildi, við Arna Karen skoðuðum leikskólann í leiðinni
- Litla frænka skírð og fékk hún nafnið Elísa Hilda
- Gísli fékk inn í HÍ
- Við fjölskyldan fengum úthlutaða íbúð á stúdentagörðunum
- Við mæðgur nutum veðurblíðunnar í botn!!!
- Arna Karen sagði fyrstu orðin sín
- Myndataka hjá Dagsljós
- Fjölskyldan dundaði ýmislegt saman í góða veðrinu
- Arna Karen byrjaði að skríða og standa upp;0)
Ágúst
- Við skötuhjú byrjuðum að pakka niður búslóðinni
- Pjattpíkuútilega ásamt köllum og barni um verslunarmannahelgina;0)
- Versló enduð með góðu pjattpíkudjammi;0)
- Sveitaferð
- Myndataka hjá Dagsljós
- Við fjölskyldan skunduðum suður og fengum íbúðina afhenta
- Við keyptum okkur svefn-tungusófa
- Fjölskyldan skellti sér í yndislegt sumarfrí til Patró;0)
- Við mæðgur fluttum suður
- Arna Karen byrjaði í aðlögun á leikskólanum
- Búslóðin flutt suður
- Við mæðgur fórum á kaffisölu Hólavatns með mömmu, pabba og strákunum
- Arna Karen varð 1 ÁRS!!!
- Ég tók upp úr kössum og raðaði í íbúðina
- Gísli kom loksins suður
- Við Gísli byrjuðum í skólanum - gerðumst HÁSKÓLANEMAR!!!
- Við fengum heimsóknir að norðan
September
- Mamma og pabbi komu suður til okkar;0)
- Arna Karen varð veik, frísk og lasin aftur:(
- Pétur kom og gisti
- og Svanhildur amma Gísla líka
- 12 mánaða skoðun hjá Örnu Karen
- Sigrún amma og Danni afi komu í heimsókn
- Guðbjörg amma og Axel afi líka
- Við skelltum okkur í matarboð í Keflavík;0)
- Við fórum í skírn til litla frænda sem fékk nafnið Ragnar Jóhann
- Ég tók ágætis stresskast yfir skólanum:P
Október
- Við fjölskyldan skelltum okkur norður í afmælið hans Daníels;0)
- Nóg að gera í skólanum!!!
- Mamma, pabbi og strákarnir komu suður;0)
- Ættarmót í fjölskyldunni hans Axels afa
- Snædís og Hildur komu suður;0)
- Snædís og Steini voru svo hjá okkur eina helgi;0)
- Við Snædís skelltum okkur á minningartónleika Villa í boði Gísla og Steina;0)
- Gísli kom heim með hvern MA-inginn á fætur öðrum til að læra með - mér til mikillar ánægju, voða gaman að hitta gamla bekkjarfélaga;0)
- Stelpukvöld hjá Kristínu Hólm;0)
- Ég keypti mér kort í háskólaræktina og skellti mér í ræktina með Eddu:P
- Ég eignaðist lítinn frænda;0)
- Við mæðgur skelltum okkur norður í smá frí;0)
- Myndataka hjá Dagsljós
- Ég lenti inn á sjúkrahúsi í blóðflöguveseni:(
- Pétur kom
- Katrín og Egill eignuðust litla prinsessu;0)
- Arna Karen fór að standa sjálf;0)
Nóvember
- Brjálað að gera í skólanum hjá okkur Gísla!!!
- Svanhildur og Gísli (amma og afi Gísla) komu suður - því miður ekki í skemmtiferð en gaman að sjá þau engu að síður
- Axel afi og Guðbjörg amma komu suður
- Familían skellti sér norður;0)
- Myndataka hjá Dagsljós
- Arna Karen varð lasin og fór til læknis:( hún greindist með bakteríusýkingu
- Jólagjafainnkaup
- Ég lenti á sjúkrahúsi vegna verks fyrir brjósti:(
- Gísli fékk inn í HR;0)
- Mamma kom suður;0)
- Hanna, Stebba og Axel kíktu suður
- Ég þreif og skreytti íbúðina og bakaði smákökur;0)
- Við familían fórum í mat til Öbbu og co
- Allir á heimilun nældu sér í ælupest:(
Desember
- Við tókum nokkra langa og góða göngutúra
- Pétur og Sigga komu suður
- Líka Axel afi og Guðbjörg amma
- Fyrstu prófin og lokaverkefnin í háskóla þreytt!!!
- Við mæðgur fórum norður í jólafrí;0)
- Arna Karen fór til læknis út af kúka-og ælustandi:S
- Gísli fór loksins í jólafrí og kom norður til okkar;0)
- Ýmislegt dútlað á Akureyrinni
- Útskrift hjá Hönnu
- Endalausar ferðir milli Akureyrar og Mývatnssveitar
- Áttum yndisleg jól og áramót í faðmi fjölskyldu og vina;0)
Eins og sjá má hefur árið meria og minni snúist um litla gullmolann okkar Gísla;0) Enda ekki nema von - auðvitað vill maður eyða sem mestum tíma með svona yndi og á hún allan okkar hug og hjarta:*
Árið 2009 er búið að vera alveg frábært og ansi viðburðarríkt. Við viljum þakka yndislegar stundir á árinu og vona að þær megi vera fleiri á þessu ári;0)
Af okkur er allt gott að frétta - ég er byrjuð á minni annarri önn í HÍ, Gísli var að hefja nám í HR í iðnfræði og Arna Karen elskar leikskólann sinn. Við erum yfir okkur hamingjusöm, lýður vel og höfum gaman af lífinu;0)
kv. litla fjölskyldan:*
Jćja...Hulda Björg Ţórđardóttir
ekki nema 2 og 1/2 vika síðan ég bloggaði síðast...bara framför hjá minni!!!En já það hefur svo sem hellingur gerst síðan...
Við mæðgur fórum norður í 5 daga heimsókn til m&p og höfðum það svaka næs á Akureyrinni. Þegar við komum heim aftur tóku við nokkurra daga veikindi hjá mér - jibbí! Alveg hrein afburðar þjónusta sem maður fær á þessu blessaða sjúkrahúsi hérna - NOT!!! Jæja svo loksins þegar ég var orðin hress aftur tók við endalaus verkefnavinna í skólanum...sko alveg meira en nóg að gera:P En sem betur fer gengur bara allt voða vel og ég er bara mjög ánægð...er búin að fá á bilinu 7 til 8,5 í öllum verkefnum og prófum tengd skólunum hingað til svo ég er mjög sátt með það;0) Ég byrjaði síðan í vettvangsheimsóknum í lok okt og verð núna út nóv í þeim. En þá fer ég sem sagt í 5 heimsóknir, ca 3 - 4 tíma í einu á stað þar sem fatlaðir eru og ég fer sem sagt í heimsókn á Bjarkarás. Mér finnst alveg ótrúlega gaman þar og bara finnst þetta æðislegur staðar - frábært starfsfólk og yndislegir einstaklingar sem eru þar;0) Við familían skelltum okkur síðan norður um síðustu helgi til að heimsækja litla súkkulaðibangsann þeirra Katrínar og Egils.
Annars er bara allt gott að frétta hjá okkur fjölskyldunni. Gísli er reyndar ekki alveg að finna sig í náminu sem hann er í og er eitthvað að huga að því að skipta. Það kemur vonandi í ljós á allra næstu dögum. Gullmolinn okkar vex og dafnar með hverjum deginum - hún er nú orðin 14 og 1/2 mánaða og algjör krúttsprengja. Hún er búin að þroskast svo mikið og það er alveg yndislegt að fylgjast með henni;0) Hún fílar sig alveg í botn á leikskólanum svo það gengur bara voða vel með hana eins og venjulega. Hún er nú reyndar lasin núna greyið en ég hef sterkan grun um að það tengist tanntöku...greyið er alveg stokkbólgin í gómnum þar sem þriðji jaxlinn er nú óðum að riðjast upp!
En jæja nú er ég búin að segja ykkur aðeins frá okkur fjölskyldunni og kem vonandi með fleiri fréttir fljótlega en aðalmarkmiðið með þessari færslu var nú samt það að fá smá hjálp frá ykkur!
Málið er að í næstu viku á ég að flytja svo kallaða kostaræðu i skólanum!!! Þessi ræða á að vera ca 3-4 min ræða um kosti mína! Ég á sem sagt að fjalla um 3 af kostum mínum...sem helst eiga að vera af mismunandi sviðum. Ég á að lýsa kostunum, segja hvernig ég viti um þá, hvernig ég nýti mér þá og hvernig aðrir geta nýtt sér þá! Til að gera þetta á ég sem sagt að fá ábendingar frá öðrum...svo hér er það sem þið komið inn. Ég væri mjög þakklát ef þið gætuð komið með einhverjar ábendingar um kosti mína....ojjj hljómar svo klisjukennt en jú svona eru skólaverkefnin skemmtileg:P
Chio - Hulda
BorgarlífiđHulda Björg Ţórđardóttir
úffúff - langt síðan síðast!!! Skulda held ég big time færslu!
jæja hvar endaði ég síðast?? - 29.ágúst! Síðan þá hefur margt gerst...en verð því miður að hafa þetta í styttri kanntinum þar sem ég er frekar tímabundin - já busy manneskja hér á ferð:P
Svo ég byrji nú á gestaganginum:
29.ágúst komu mamma og pabbi suður til okkar;0) Æðislega gaman að fá þau, snúllan ákvað reyndar að verða veik svo við þurftum að biðja Valgerði að koma og passa hana meðan við Gísli, mamma og pabbi fórum í útskriftarveislu til Fríðu vinkonu mömmu.
18.sept komu Sigrún amma og Danni afi suður og eyddu helginni í Keflavíkkini. Svanhildur amma Gísla kom líka þennan dag og gisti eina nótt hjá okkur, fór svo til Færeyja í 4 daga og kom svo aftur til okkar og gisti í 2 nætur. Voða gaman að fá þau öll líka;0)
25.sept komu Guðbjörg amma og Axel afi suður í skírn svo auðvitað hittum við þau;0) Alltaf jafn gaman að hitta fjölskylduna;0)
10.okt komu svo m&p, Daníel og Tómas, amma og afi, og svo Snædís og Steini. Svvooo gaman að fá þessar heimsóknir;0) Og sko alveg nó að gera þá helgi!!!
Tengdapabbi er svo búnir að koma nokkrar ferðir yfir nótt til að fara á fundi hérna í borginni;0)
Þá er það skóla- og borgarlífið:
Við erum komin í ágætis rútínu hérna. Allir að spurja okkur hvernig borgarlífið sé....sem okkur finnst frekar fyndið þar sem allur okkar tími fer í skólann, heimanám og prinsessuna okkar;0) En hér er mjög fínt að vera. Nóg að gera í skólanum hjá okkur báðum svo við gerum fátt annað en læra. Við höfum það sem reglu að koma heim strax eftir skóla og læra þar til Arna Karen er sótt á leikskólann, svo er allavega annað okkar og helst bæði með henni þar til hún fer að sofa á kvöldin og ef það er mikið að gera í skólanum þá tökum við oft syrpur þegar hún er sofnuð í að læra! Við reynum að vera rosa dugleg að eyða tíma með Örnu Karen og gera eitthvað skemmtilegt með henni þar sem jú hún er algjörlega í forgang!
Ég byrja alltaf kl 8:30 á morgnana en Gísli byrjar 8:20 svo ég fer yfirleitt með Örnu Karen á leikskólann áður en ég fer í skólann. Ég er í skólanum til 10 á mánudögum, 11 á þriðjudögum, 15 á miðvikudögum, 13:30 á fimmtudögum og 12 á föstudögum. Svo ég hef góðan tíma eftir skóla til að læra. Gísli er búin um hádegisbil á mánudögum, svo alveg til 6 á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum en er svo í fríi á föstudögum. núna í sept og okt er hann svo annan hvern laugardag í skólanum fyrir hádegi.
Við reynum oftast að gera eitthvað saman fjölskyldan á föstudögum - kúplum okkur aðeins út úr náminu og skólanum og gerum eitthvað skemmtilegt;0) Svo höfum við dáltið verið að fá gesti um helgar svo auðvitað eyðum við þá helgunum með þeim sem er auðvitað bara frábært;0)
Okkur gengur bara vel í skólanum, strembið en gengur. Hér þýðir ekkert annað en að vera extra skipulagður og gríðarlega duglegur;0) Ég er búin að fá einkunnir úr fjórum verkefninum og eru þær á bilinu 7,25 og 8,5 svo ég er bara rosalega sátt við það:D Gísli er einnig búinn að standa sig með prýði, enda ekki við öðru að búast af þessari elsku:*
Gísli kemur svo heim með hvern "MA-inginn" á fætur öðrum hehe. En hann er í tímum með mjög mörgum krökkum sem voru með mér í MA, sem mér finnst frekar fyndið. Svo ég er alltaf að hitta gamla bekkjarfélaga í stofunni hjá mér annars lagið, sem er auðvitað mjög gaman:P
Síðast en ekki síst hversdagleikinn - fyrir utan námið:
Við höfum aðeins reynd að taka okkur pásur annars lagið á skólanum þegar við erum alveg komin með nóg. Annars stendur það ekkert afskaplega oft til boða en það er allt í lagi þar sem okkur finnst báðum mjög gaman í skólanum. Tíminn eftir skólann fer oft í að ræða málefni dagsins við hvort annað hehe.
En þar sem við erum búin að fá ansi margar heimsóknir upp á síðkastið hafa flest allar helgar farið í ýmis konar þvæling og búðarráp. Síðan höfum við farið aðeins í matarboð og heimsóknir - þá aðalega til frænda minna.
Fyrstu helgina í október skelltum við okkur norður í afmæli til litla bró - ohh hvað það var æðiæðiæði að komast HEIM!!! í jólasnjókomuna og greifapizzuna haha:P
Síðustu helgi fór ég svo á Villa tónleikana með Snædísi sem voru GEÐVEIKIR:D ohh ég var brosið allan hringinn og ekki laust við það að ég væri klökk annars lagið. Þann dag var líka ættarmót í ættinni hans Axels afa sem var bara mjög skemmtilegt:0)
Síðan er ég búin að fara á eitt stykki stelpukveld...mikið rosalega var það notalegt;0) En Kristín Hólm bauð okkur Ingu Lind í mat og spjall...var sko farin að sakna þess - vonandi verðum við bara duglegri við þetta á næstunni!
Já og vitiði hvað hún Hulda er dugleg - haldiði ekki að kjellan hafi ekki bara keypt sér kort í HÍ-ræktina sem er hérna bara rétt hjá. En við Edda ákváðum að taka okkur á, kaupa okkur kort í ræktina og reyna að fara svona 3 í viku. Byrjuðum í þessari viku og hefur bara gengi rosa vel hjá okkur;0) Svo gott að fara og hreyfa á sér rassgatið aftur! Enda ljótan og feita talsvert farin að segja til sín hérna:S
Hm já annars veit ég ekki hvað ég á að segja ykkur meir....
Ég fer bara í eitt jólapróf...það er 10.des. Gísli fer í 5 jólapróf og fer þar af leiðandi ekki í frí fyrr en 19.des. Styttist óðum í jólin og jólabarnið ég er sko farin að hlakka heavy til...aðeins byrjuð að skipuleggja hitt og þetta, gott að byrja tímanlega á þessu!. Ég er komin með stundatöflu fyrir næstu önn líka. Er á mánudögum 12 - 15:10, þriðjudaga 9:20 - 11:50, miðvikudaga 9:20 - 14:20, fimmtudaga 9:20 - 11:50 og svo fer eftir því í hvaða hóp ég er í, í einu faginu hvort ég sé frá 9:20 - 11:50 eða 12:50 - 15:20. Svo ég held að þetta sé nú bara ágættis stundatafla;0) Spennandi fög líka - félagsfræði, fötlunarfræði og sálfræði bernsku og unglingsára!
Síðan er ég að fara í vettvangsheimsóknir í þroskaþjálfafræðinni...en þá förum við einu sinni í viku í 5 vikur í heimsókn á einhvern stað sem tengjist ummönun fatlaðra. Ég valdi mér Bjarkarás sem er hæfingarstöð fyrir fólk með þroskahömlun, hlakka rosa til að fá að kynnast starfinu þar;0)
Við mæðgur ætlum svo að skella okkur norður á morgun og verðum sennilega fram á fimmtudag. Í næstu viku er rosa mikið frí hjá mér vegna staðlotu fjarnema svo við ákváðum að nýta tímann og vera í faðmi fjölskyldunnar. Gísli þarf að vera í skólanum svo hann verður eftir hér í borginni...enda nóg að gera hjá honum fullt af prófum og læti! Svo hann ætlar bara að nýta tímann og vera rosa duglegur!
En jæja læt þetta gott heita í bili! Þetta varð óvart muuuun lengra en þetta átti að vera hehe:P
Adios - Hulda
p.s nenni ekki að lesa yfir stafsetningarvillur...svo sorry!!!
Skilyrđislaus ást!!!Hulda Björg Ţórđardóttir
HáskólaskvízHulda Björg Ţórđardóttir
Jæja langt síðan síðast...og nóg búið að gerast!!!
Fimmtudagskvöldið 7.áúst brunuðum við fjölskyldan suður í borg óttans. Fengum að gista hjá Gumma og Nínu þar sem við fengum ekki okkar íbúð á görðunum fyrr en á föstudeginum. En já á föstudeginum fórum við svo í IKEA og keyptum okkur nýjan sófa í stofuna...ákváðum að selja okkar sófa og kaupa okkur svefnsófa í staðinn. Fundum voða fínann svefn-tungusófa - mjög stórann og rúmgóðan með geymlsurými undir tungunni. Svo nú getur fólk gist hjá okkur þegar það kemur suður;0) Um kaffileytið fengum við síðan íbúðina okkar...verð að viðurkenna að mér leist ekkert á þetta til að byrja með hehe. Um kvöldið fór Arna Karen í pössun til Fríðu og co meðan við Gísli, Egill og Katrín skelltum okkur á Clapton tónleikana - sem by the way voru æði;0)
Á laugardeginum (9.ágúst) brunuðum við út á Snæfellsnesið þar sem við tókum ferjuna yfir á vestfirði og skelltumokkur svo til Patreksfjarðar til ömmu og afa Gísla. Þar vorum við fram á þriðjudag í leti og dekri - æðislegt fjölskylduferðalag;0) Snúllan ákvað að taka rosa þroskaframförum fyrir vestan og fór allt í einu að gera heilan helling - alveg frábært;0)
Á þriðjudeginum (12.ágúst) var síðan lagt af stað aftur til borgarinnar, komum við í Mosó og náðum í Hönnu. Gísli skellti saman sófanum fyrir okkur áður en hann flaug norður aftur. Hanna var hjá okkur fram á fimmtudag og fóru dagarnir aðalega í aðlögun á leikskólanum og búðarráp!. Föstudaginn 15.ágúst flugum við mæðgur síðan til Akureyrar til að halda upp á 1 árs afmæli snúllunnar og klára að pakka. Afmælið var æði - krúttið fékk heilan helling í afmælisgjöf og já æji bara alveg yndislegur dagur;0) Á sunnudeginum brunuðu Gísli og Egill suður með alla búslóðina - á meðan við Arna Karen eyddum deginum í faðmi fjölskyldunnar. Gísli kom svo heim aftur rétt áður en við prinsessan áttum flug suður.
Dagarnir 18. - 22.ágúst fóru síðan í meiri aðlögun á leikskólann og að koma sér fyrir í íbúðinni. Svo var okkur boðið í mat, bæði til Magga og svo til Gumma og Nínu. Hittum ömmu og afa sem voru að koma frá Eyjum og stoppuðu hér í nokkra daga. Já svo hitti ég Hildi og Izaar í Smáralind á föstudeginum...fékk þau meira að segja til að koma og kíkja á íbúðina. Gísli kom svo LOKSINS suður til okkar á föstudagskvöldinu (22.ágúst) mikið var ég fegin að fá hann...erfitt að vera svona ein með stelpuna og þurfa að gera allt sjálfur...mun betra að fá smá hjálp hehe.
Um síðustu helgi héldum við síðan áfram að koma okkur fyrir hér í íbúðinni og fórum í búðir að versla það sem þurfti að versla. Hildur Dagbjört, frænka Gísli kíkti líka til okkar. Við hjúin versluðum okkur nýja síma þar sem þeir gömlu voru við það að gefa upp öndina. En já ég verð að segja að það rættist bara ótrúlega úr þessu með íbúðina...átti ekki vona á því að þetta myndi rúmast svona vel hérna. En þetta er bara voða kósý hjá okkur - svo ég er bara mjög ánægð;0)
Á mánudaginn varð gullið á heimilinu 1 árs!!! Ótrúlegt hvað tíminn líður...finnst svo stutt síðan hún fæddist...já og eila bara stutt síðan ég komst að því að ég væri ófrísk. Trúi þessu bara varla!!! En við áttum yndislegan dag saman og eftir skóla og leikskóla fórum við í fjölskyldu- og húsdýragarðinn og eyddum dágóðum tíma þar, borðuðum síðan góðan mat um kvöldið og svona. Við foreldrarnir gáfum prinsessunni okkar þríhjól í afmælsigjöf sem daman var að sjálfsögðu hæstánægð með. Þetta er rosa sniðugt og flott hjól sem hún getur byrjað að nota núna og getur fylgt henni næstu 2-3 árin.
Svo byrjaði skólinn líka á mánudaginn - sem var mjög fínt en samt sem áður frekar skrítið. Bæði skrítið að vera ekki heima með gullmolann og líka að þurfa að vakna á morgnana og koma sér út...sem sagt þurfa actually að gera eitthvað annað en að hugsa um snúlluna...já og tala nú ekki um það að þurfa allt í einu að LÆRA!!! Hehe en okkur líst báðum mjög vel á þetta allt saman, verður bara gaman að fara að læra aftur...tala nú ekki um þegar það er eitthvað sem manni finnst spennandi og áhugavert! Ég er í fámennum bekk með fólki á öllum aldri í tímum sem mér finnst frábært. Gísli aftur á móti er í mjög svo stórum bekk og flest allir í yngri kanntinum.
En já við erum sem sagt bara búin að vera að koma okkur inn í þetta allt saman í skólanum. Arna Karen er búin í aðlöguninni og er farin að vera allan dagin á leikskólanum (eða 8 - 16). Á þriðjudagskvöldið komu tengdapabbi og Stefán í heimsókn, Pétur var að fara á fund hérna og Stefán var hjá okkur á meðan. Eva Dís kom í mat til okkar í gærkvöldi. Mamma og pabbi eru síðan á leiðinni suður til okkar og ætla að vera hér fram á mánudag....ohh hvað ég hlakka til:D:D:D
Annars líður okkur bara vel hérna. Erum samt ekki alveg búin að venjast þessu ógeðs rigningarveðri sem er ansi oft hérna...og þessari crazy umferð. Hér skreppur maður heldur ekki neitt...það tekur allt svo langan tíma hérna. En þetta venst sjálfsagt:P Annars söknum við bara allra!!! Vonandi sjáum við ykkur sem fyrst:*
kv. Hulda háskólaskvíz
Í kvöld...Hulda Björg Ţórđardóttir
jámm við förum suður Í KVÖLD!!! Þetta er bara alveg að bresta á....trúi þessu varla!!!Síðustu dagar eru bara búnir að fara í að pakka!!! Og er þetta að mestu að verða búið hérna....og íbúðin troðfull af kössum. Arna Karen getur ekki leikið sér hérna lengur og er því búin að verja dágóðum tíma á efri hæðinni...sér og langömmu sinni og langafa til mikillar ánægju;0) Það gefur mér þar af leiðandi meiri tíma í að stússast hérna niðri. En já hér er varla hægt að snúa sér í hring eða setjast niður fyrir kössum og drasli. Við Gísli vorum einmitt að furða okkur á því hvernig í ósköpunum við hefðum komið öllu þessu dóti fyrir í svona lítilli íbúð!!!
En já stofan er að mestu búin - bara fataskápurinn eftir sem fer nú bara alveg síðast þegar öllum fötum verður sópað ofan í ruslapoka áður en það er lagt af stað með allt dótið suður hehe. Svo er herbergið líka að mestu búið...bara eftir að tæma kommóðurnar - en það eru líka eiginlega bara föt og svona af Örnu Karen sem fara líka bara ofan í poka þegar við förum. Eldhúsið er klárt sem og ruslaskotið og geymlsan okkar. Þá er bara baðherbergið eftir...sem ætti nú ekki að taka langann tíma. En já þar sem dótið okkar kemur ekki suður fyrr en 17.ágúst þarf að pakka ansi vel og vandlega niður í dag. Því jú við erum að fara suður í tóma íbúð og eitthvað verður maður að hafa þar...svo er auðvitað slatti sem fylgir svona lítilli snúllu;0) Tala nú ekki um að smá ferðalag kemur þarna inn í - við erum nebbla að fara til Patró í nokkra daga. En ég gerði heljarinnar lista yfir allt sem við þurfum að hafa með okkur svo það á bara eftir að henda ofan í töskur og taka þetta til. En Huldan rumpar þessu af á nó tæm á eftir;0)
En úff hvað það verður samt skrítið að fara svona burt. Ég veit...við erum bara að fara til Reykjaíkur...en það verður samt eitthvað skrítið að geta ekki hitt mömmu, pabba og strákana....eða vinina þegar manni hentar. En við eigum góða að í borginni svo þetta bjargast nú;0) Verðum dugleg að koma norður...og vona innilega að fjölskyldur okkar og vinir verði duglegir að koma suður!!! Við fjölskyldan fórum út að borða með Snædísi, Steina, Hildi , Izaar, Írisi, Valgerði, Evu Dís og Hrefnu í gær....smá svona kveðjustund!!! Svo förum við í mat til mömmu og pabba í kvöld áður en við leggjum af stað. Þá getur maður aðeins knúsað familíuna bless. Úff ég á pottþétt eftir að vera með tárin í augunum í kvöld....:( Hulda lúði ég veit!!!
Svo þarf maður að læra allt upp á nýtt þarna fyrir sunnan....fattaði það allt í einu um daginn. Ég rata nú ágætlega sko...en veit ekki ennþá hvar þetta er sem mínir tímar munu koma til með að vera kenndir. Svo þarf maður að finna út hvar er hentugast að versla, hvar er best að fara í klippingu og plokkun&litun, hvert fer ég með myndir í framköllun, hvar fer ég í blóðprufur, hvert fer ég með pappíra fyrir tryggingastofnunina og og og.....þetta heldur endalaust áfram. En ég treysti á mínar góðu vinkonur í borginni að leiðbeina mér í þessu öllu saman;0)

Jæja best að halda áfram....nóg eftir!!!
*knús*
kv. Hulda :*
Ein og hálf vika...Hulda Björg Ţórđardóttir
já takk fyrir takk...ekki nema ca 10 dagar í að við flytjum suður.Ýmislegt búið að breytast síðan ég skrifaði síðast. En já við komumst sem sagt inn á stúdentagarðana...okkur til mikillar undrunar:P Og eftir að hafa eitt heilu kvöldi í að ræða þetta fram og til baka og skoða alla möguleika ákváðum við að taka íbúðinni á görðunum!!! Svo við erum sem sagt ekki að fara í kópavoginn. Þó að íbúðin á görðunum sé minni en þessi í Kópavogi...er hún samt alveg helmingi stærri en þessi sem við erum í núna hehe;0) Svo er leigan ódýrari og síðan er netið innifalið....svo það munar alveg HELLING fyrir námsmenn með barn!!! Þar að auki er skólinn bara rétt hjá og leikskólinn í næsta húsi...svo þetta er bara ótrúlega þæginlegt. Svo vorum við líka bara með íbúðina í kópavogi í ár til að byrja með og ætluðum þá að reyna að komast á garðana...svo það er fínt að þurfa ekki að vera að margtflytja hehe...séstaklega þar sem við ætlum að reyna að vera á Akureyri á sumrin...allavega svona til að byrja með. Svo við erum bara rosa ánægð með þetta;0) Held við getum haft þetta rosa kósý þarna;0) Líka fínt að geta verið innan um fólk í sömu sporum og við...tala nú ekki um að hafa risa leikherbergi í húsinu sem Arna Karen getur leikið sér í þegar hún er orðin aðeins stærri. Svo er víst hægt að leigja einhvern sal þarna í húsinu fyrir lítinn pening til að halda afmæli og veislur og svona...mjög svo sniðugt allt saman!!!En já við fáum sem sagt íbúðina afhenta um kaffileitið 8.ágúst sem er frábært...þar sem við komum suður 7. eða 8.ágúst. Getum þá kíkt á íbúðina og sofið þar eina nótt áður en við förum á Patró og Gísli fer síðan aftur norður. Séð svona fyrir okkur hvernig við viljum hafa hlutina og svona. Annars er gísli búinn að sjá stundatöfluna sína - sem er vægast sagt frábært;0) Reyndar heldur hann að það vanti eitthvað í hana og fær ekki að vita það fyrr en í ágúst. En allavega eins og stendur er hún svona...hann byrjar alltaf kl 8:20 og mán, mið og fim er hann til 12...þri til 10 og FRÍ á föstudögum!!! Næs;0) En já hún gæti auðvitað átt eftir að breytast...sjáum til!!!
Hmm já síðast var það brúðkaupið sem ég sagði ykkur frá...síðan þá erum við búin að bralla ýmislegt. Það varð aldrei neitt úr útilegunni með Snædísi og Steina...fyrst varð Arna Karen veik og svo var mígandi rigning og þá nenntum við ekki. En við Arna Karen skelltum okkur í smá stelpuferð í borgina 16. - 18.júlí með Snædísi og Hildi...hún einkenndist aðalega af búðarrpápi hehe. Svo kíktum við Arna Karen auðvitað á leikskólann sem hún er að fara á...Leikgarð. Okkur leist bara rosa vel á hann og hún byrjar í aðlögun 13.ágúst.
Í síðustu viku varð Arna Karen 11 mánaða gömul!!! Úff vá hvað þetta líður hratt...ekki nema tæpur mánuður í að gullið mitt verði 1 árs. Trúi ekki að það sé að verða ár síðan hún kom í heiminn...finnst eins og þetta hafi bara gerst í fyrradag. En þetta er búinn að vera ÆÐISLEGUR tími og án eflaust eftir að verða það áfram:D Hún er svo YNDISLEG og ég geti ekki lýst því hvað ég ELSKA hana mikið:*:*:*
Stefnan er svo að fara í útilegu saman stelpurnar um versló...með kallana með okkur og auðvitað litla gullmolann minn. Gaman að gera eitthvað svona saman áður en við förum suður. Vona reyndar líka að við getum farið saman út að borða í næstu viku áður en við förum....svona kveðju-afmælis-dinner, til að kveðja almennilega og smá svona afmælisveisla fyrir Örnu Karen.
Hmm ég er ekki byrjuð að pakka:S Úff ég bara nenni þessu innilega ekki. Þetta er svo sem ekki mikið mál þegar maður er kominn af stað....bara fæ mig ekki til að gera þetta!!! Það er bara svo æðislegt veður að það er ekki séns að ég nenni að hanga inni og gera þetta. Búið að vera yfir 20 stiga hiti í marga daga - GEGGJAÐ;0) Eeeeeeen ég ætti kannski bara að skella ABBA í og drífa í þessu hehe. Ég er að gera Gísla vitlausa þessa dagana....hlusta ekki á neitt nema ABBA:P Já ég fór nebbla á Mamma Mia um daginn....ehhmmm þrisvar!!! og algjörlega ELSKA þessa mynd...hún er bara ÆÐI. Langar rosa í sound-trackið úr myndinni og já bara myndina sjálfa...er að bíða eftir að þetta komi á netið...Egill ætlar að vera svo góður að downloada þessu fyrir mig;0)
Kveðja hérna úr Costa del Akureyri....
Adios - Hulda:*
brúđkaup...Hulda Björg Ţórđardóttir

En já á föstudaginn, 11.júlí....hefði amma Freyja líka átt afmæli og orðið 83 ára gömul:*

Annað í fréttum er að við mæðgur ætlum að skella okkur suður á miðvikudaginn með Snædísi og Hildi og vera fram á föstudag. En planið er að fara og skoða leikskólann sem snúllan fer á og svo kannski kíkja á smá búðarráp;0) Verður ábyggilega fínt að fara í smá svona stelpuferð. Svo get ég kannski líka séð betur fyrir mér hvernig ég vil hafa íbúðina þegar ég er stödd í henni...en við ætlum einmitt að gista þar þegar við förum suður núna í vikunni. Gott líka að geta fengið annað áliti frá stelpunum og svona;0)
En já ekki nema 25 dagar í að við mæðgur yfirgefun Akureyrina...og ég ekki einu sinni byrjuð að pakka hehe. Svo sem fínt að vera í svona litlu húsnæði...komum ekkert öllu dótinu okkar fyrir hér í Áshlíðinni svo það er enn fullt af drasli í kössum sem við þurfum þá ekkert að vera að hafa áhyggju af núna;0) En Gísli er LOKSINS búinn að fá svar frá skólanum. Hann komst nebbla að því í síðustu viku að skólinn týndi umsókninni hans svo hann varð að senda allt aftur og eitthvað vesen. En svo hringdi hann í dag og fékk þær fréttir að hann er kominn inn í vélaverkfræði:D:D:D Bjóst nú reyndar ekki við öðru en að þessi elska kæmist inn með alla sína menntun og himinháu einkunnir....BESTASTUR!!! Svo er ég búin að sjá stundaskrána mína...og verð að segja að hún er bara voða næs;0) En hún er svona...
* mán: 8:30 - 11
* þri: 8:30 - 11
* mið: 8:30 - 11:50 og 12:50 - 15:10
* fim: 8:30 - 11 og 12 - 13:30
* fös: 8:30 - 11:50
og jú þetta er sko fullur skóli...eða 30 einingar (samkvæmt nýja einingakerfinu - eða 15 einingar í gamla kerfinu). En það er fínt að vera búin svona snemma....þá get ég nýtt tímann til fjögur á daginn og lært og sótt síðan Örnu Karen á leikskólan kl 16. Þá getur maður eytt tímanum með henni eftir leikskóla og þar til hún fer að sofa og gert eitthvað skemmtilegt eða já bara einbeitt sér að henni en ekki skólanum. Svo ef það er mikið að gera í skólanum þá getur maður bara lært aftur á kvöldin þegar hún er farin að sofa. Svo ég held að það verði bara betra fyrir alla að hún sé í fulli plássi á leikskólanum....eða frá 8 - 16. Svo er bara að bíða og sjá hvernig Gísli verður í skólanum, en það ætti að koma í lok vikunnar eða í næstu viku.

kv. Huldan
JúlíHulda Björg Ţórđardóttir
Úff ein ekki alveg að standa sig í blogginu....og ég sem lofa öllu fögru í hverju bloggi. Svo í þetta skiptið ætla ég ekki að lofa neinu um hvenær næsta blogg kemur....það kemur bara þegar það kemur hehe. En allavega...það er nóg að frétta af okkur...Við erum búin að bralla ýmislegt síðan ég bloggaði síðast...
* Helgina 20. - 22. júní fórum við fjölskyldan á ættarmót í Lundi sem var alveg frábært;0) Skemmtum okkur konunglega og enduðum helgina á að fara í sveitina í smá heimsókn.
* Vikuna eftir var gæsunar- og steggjunarundirbúningur hjá okkur. En við gæsuðum og steggjuðum Katrínu og Egil laugardaginn 28.júní. Það var svaka stuð hjá okkur og held að þetta hafi bara heppnast rosa vel;0)
* Við stelpurnar skelltum okkur ásamt köllunum í keilu. En við Gísli, Snædís, Steini og Eva Dís mættum fyrr og fengum okkur að borða. Svo komu Hildur og Izaar og við tókum tvo leiki. Stelpur á einni braut og strákarnir á hinni. Bara rosa skemmtilegt kvöld;0)
* 10 mánaða skoðun og myndataka hjá prinsessunni minni
* Pabbi varð 45 ára og að sjálfsögðu var okkur boðið í grill;0)
* ég eignaðist litla frænku:D
Þetta var restin af júní...þá er næst það sem af er júlí...
* Fyrsta vikan í júlí var síðan síðasta vinnuvikan mín....en nú er ég sem sagt HÆTT AÐ VINNA í bíóinu og komin í SUMARFRÍ þangað til skólinn byrjar:D Verð að segja að síðustu dagarnir voru vægast sagt HORROR. En það var n1 mót hérna á Ak og var krökkunum að sjálfsögðu boðið í bíó. Við sem sagt tókum á móti 1600 krökkum í bíó á 2 dögum....HORROR. Ótrúlegt hvernig 10 - 12 ára guttar geta leyft sér að tala...annan eins dónaskap og frekju hef ég bara aldrei heyrt á ævi minni. Ekki nóg með það heldur voru þjálfararnir og liðstjórarnir engu skárri:S En tek það fram að þetta átti að sjálfsögðu ekki við öll lið...sum voru algjörlega til fyrirmyndar;0) En verð að segja að ég var að deyja úr þreytu og pirringi eftir þessa daga:S Enda var ég að vinna á fim og fös frá 9 - 23:30...!!! svo var nóg að gera um helgina líka!!!
* Anna Birna og Valdi skelltu sér norður á fim fram á mán og auðvitað hittum við þau....fórum á greifann, sund, brynju, keilu og svona....rosa gaman;0) Þau eru algjört æði:*
* Við fjölskyldan ætluðum í útilegu í gær með Snædísi og Steina en urðum að fresta því vegna þess að snúllan er orðin lasin:S
Framundan er svo nóg að gera....
* spilakvöld og dinner í kvöld;0)
* matarboð á morgun og brúðkaupsundirbúningur
* sjötugsafmæli á föstudaginn hjá afa Gísla, en þá verður öll fjölskyldan stödd hérna á Ak...ekkert smá gaman
* brúðkaup hjá Agli og Katrínu á laugardaginn:*:*:* ohh það verður ÆÐI
* útilega mán - þri í næstu viku með Snædísi og Steina
* suðurferð hjá okkur mæðgum ásamt Hildi og Snædísi mið - fös í næstu viku (ætla að skella mér til augnlæknis og skoða leikskólann)
* Skírn hjá litlu frænku
* opnunarteiti í fuglasafninu
* vonandi pjattpíkuútilega ásamt köllum og barni um versló
Hmmm já svo er það aðalatriðið...ég sem sagt byrja í HÍ mánudaginn 25.ágúst (á afmælisdaginn hennar örnu karenar:( ). Við erum búin að ákveða að vera í ásbrautinni í kópavogi...í íbúðinni sem amma og afi eiga. Var að tala við leikskólann og það er víst reiknað með 2 vikum í aðlögun en ekki 1 viku eins og ég hélt...svo við þurfum að fara fyrr suður. En við fjölskyldan förum suður 8.ágúst því við hjúin ætlum að skella okkur á tónleika með Eric Clapton, fara svo vestur á Patró 9. - 12. ágúst. Gísli ætlar að fljúga heim en við mæðgur verðum áfram fyrir sunnan. Svo litla snúllan okkar byrjar í aðlögun á leikskólanum 13.ágúst....úffípúff!!! Finnst hún ennþá svo lítil...en neinei hún er alveg að verða 1 árs skvízan! Við mæðgur erum þá sem sagt fluttar suður þarna 8.ágúst. Ég get nýtt vikuna í að skipuleggja íbúðina og ákveða hvernig er best að raða hlutunum. Kaupa það sem þarf að kaupa og svona. Við mæðgur komum svo norður 15.ágúst til að klára að pakka og halda upp á afmæli prinsessunnar. Gísli ætlar síðan að keyra með okkur suður 17.ágúst því vinur okkar ætlar sennilega að redda fluttningabíl og keyra dótið okkar suður þá. Þeir ætla að koma stóru húsgögnunum á réttan stað fyrir mig og bruna svo norður aftur. Ég get síðan nýtt seinni aðlögunarvikuna hennar Örnu Karenar í að byrja að koma okkur aðeins fyrir og svona. Gísli flytur síðan til okkar 22.ágúst og þá höfum við helgina í að klára að koma okkur fyrir áður en skólinn byrjar. Svo þetta er bara allt að bresta á;0)...váááá hvað ég er farin að hlakka til...!!! Þá er það bara að fara að byrja að pakka og skipuleggja!!! Gaman gamana gaman :D:D:D
Jæja nóg af fréttum af okkkur í bili....kommenta takk!!!
Hulda - semeraðfaraaðflytjaeftir30daga!!!
1 árs stúdent!Hulda Björg Ţórđardóttir
Nóg að frétta hér á bæ skal ég segja ykkur!!!Við skötuhjúin fjárfestum í nýjum-gömlum bíl. Kominn tími á alvöru fjölskyldubíl - því jújú það er ansi mikið dót sem fylgir dótturinni;0) En já við keyptum okkur sem sagt Volvo v70, árgerð '97...og erum bara hæstánægð með kerruna:D Nóg pláss fyrir allt og alla og bara algjör snilld!!!
Svo allt er reddí í bílamálum hér á bæ. Annað en hægt er að segja með íbúðarmál hehe....svo sem ekkert slæmt þannig séð að frétta heldur! En málið er að við sóttum um á stúdentagörðunum og umsóknin okkar er enn í skoðun - sem sagt hefur verið mótekin en erum ekki búin að fá samþykkt eða neitun ennþá. Hugsa að við eigum alveg góða möguleika að komast inn þar sem við hjúin erum jú bæði að fara í HÍ og erum með barn líka. En svo hins vegar stendur okkur til boða önnur íbúð...!!! En já við Gísli höfum afar lítið geta rætt þetta almennilega því við erum nánast aldrei heima á sama tíma þessa dagana....og það litla sem við erum búin að ræða erum við bara engan vegin sammála um. Svo málin vandast aðeins og þetta á ábyggilega eftir að taka smá tíma - en við finnum nú lausn á þessu;0)
Hvað varðar skólann þá er ég komin inn:D Já ég er sem sagt búin að fá umsóknina mína sammþykkta svo ég verð í þroskaþjálfafræði við HÍ næsta vetur;0) Það er ekki búið að svara Gísla ennþá, hans umsókn er enn bara mótekin....en við hljótum að fá svar á allra næstum dögum. Og trúi ekki öðru en að hann komist inn með sínar himinháu einkunnir;0) En já mér finnst þetta allt vera að smella hjá okkur....eða já svona næstum allt hehe.
En já að aðal efninu...eins og fyrirsögnin segir er ég sem sagt orðin 1 árs stúdent. Jújú Gísli er það víst líka....en í MA fylgir því svaka stuð;0) Bekkurinn minn ákvað sem sagt að taka þetta með trompi og gera eitthvað saman yfir helgina líka, en ekki hittast bara á sextándanum. Svo við ákváðum að skella okkur í Ysta-flell, sem er eins konar bústaður sem fjöldkyda einnar í bekknum á. Það var ágæt mæting svona um kvöldið, en ekki alveg jafn margir sem gistu. Samt sem áður rosa gaman - grilluðum, spjölluðum, fórum í pottinn og fleira. Þetta var í fyrsta skiptið sem ég fór frá gullinu mínu yfir nótt og var satt best að segja alveg svakalega stressuð. Vissi nú reyndar að þau feðginin myndu alveg spjara sig...en mér fannst alveg afskaplega erfitt að vera svona án hennar. En við vorum komin heim um hádegi og þá skelltum við familían okkur í sund og fórum síðan í göngutúr í góða veðrinu.
Á laugardagskvöldið var síðan bekkjarparty hjá Kristínu Hönnu. Verð að segja að þetta var laaaang skemmtilegasta party sem ég hef farið í lengi;0) Spjall, fíflalæti, dans, drykkir, snakk og trampólín einkendu þetta kvöld. Síðan var rölt í bæinn og leist okkur ekkert á blikuna þegar þangað var komið svo við forðuðum okkur bara heim.
Sunnudagurinn fór bara í leti heima með unnusta mínum og dóttur. Um kvöldið hittist síðan allur árgangurinn út í Kjarna og grillaði...en ég var nú bara alveg búin á því svo ég ákvað bara að vera heima og hafa það heavy kósý með ástinni minni:* Áttum alveg yndislegt kvöld;0)
Mánudagurinn - 16.júní...var síðan the day!!! Ég fór um kaffileitið til Snædísar og Adda Soffía kom þangað að mála okkur. Svo tókum við okkur til og brunuðum til Sigrúnar í fyrirparty. Svo var skellt sér í höllina;0) Kvöldið var bara æði í alla staði. Borðhaldið stóð frekar lengi yfir, með söng og tilheyrandi skemmtiatriðumm inn á milli. Rosa góður matur svo þetta var fínt. Á miðnætti áttum við 1 árs stúdentar dansgólfið þar sem við tókum af okkur hvítu kollana á slaginu tólf. Síðan var svaka ball með hljómsveitinni í svörtum fötum. Sem sagt bara frábært kvöld:D:D:D
En já nú er ég sem sagt með svarta húfu...verð að viðurkenna að mér finnst hún ekki alveg jafn sæt og hin hehe. Langar bara að vera áfram nýstúdent!!!
Á 17.júní fórum við fjölskyldan í útskriftarveislu til Evu Dísar - hún var með fína hvíta húfu...en ég bara svarta...:/ Fórum svo til Katrínar og Egils og röltum með þeim í bæinn. Okkur var síðan boðið í mat í Vallgargerðina í hangikjöt. Um kvöldið skelltum við stelpunni í vagninn og rötlum niður í bæ að sýna okkur og sjá aðra hehe. Það var svaka stemmning í bænum svo það endaði þannig að við vorum þar mest allt kvöldið...eða alveg þangað til nýstúdentarnir voru búnir að marsera;0)
Svo erum við familían að fara í útilegu um helgina...ætlum að skella okkur á ættarmót sem verðu haldið í Lundi í Öxarfirði. En jæja gott í bili...
Huldan


